Markmið: Nemendur - nái skipulegum tökum á námsgagnagerð og glími við spurningar um námsmarkmið, markhópa, hugmyndavinnu, gagnvirkni, notendaskil og framsetningu á efni - átti sig sem best á möguleikum og takmörkum ýmissa miðla við efnisgerð til náms og kennslu Viðfangsefni: Á námskeiðinu verður fengist við námsefnisgerð með hjálp upplýsingatækni, gagnagerð og margmiðlun af ýmsum toga. Nemendur fara yfir ýmis grundvallaratriði sem varða námsmarkmið, markhópa, handritsgerð, gagnvirkni, miðlun og framsetningu á efni; kynnast áhöldum til vinnslu á myndefni og hljóðum; spreyta sig á gagnagerð og setja saman einfalt efni þar sem miðlum er teflt saman. Vakin verður athygli á ýmsu sem ofarlega er á baugi í þróun á sviði upplýsingatækni og miðlunar hverju sinni. Litið verður á námsefnisgerð og margmiðlun í fræðilegu samhengi kenninga um nám og kennslu með sérstakri áherslu á myndræna framsetningu, notendaskil og gagnvirkni. Stuðlað verður að því að nemendur átti sig sem best á kostum og takmörkum ýmiss konar miðla í starfi grunnskóla. Umsjónarkennari:Stefán Jökulsson
20.50.61 Námsgagnagerð og miðlun
ECTS: 6 einingarKennslumisseri: Vor
Markmið: Nemendur - nái skipulegum tökum á námsgagnagerð og glími við spurningar um námsmarkmið, markhópa, hugmyndavinnu, gagnvirkni, notendaskil og framsetningu á efni - átti sig sem best á möguleikum og takmörkum ýmissa miðla við efnisgerð til náms og kennslu Viðfangsefni: Á námskeiðinu verður fengist við námsefnisgerð með hjálp upplýsingatækni, gagnagerð og margmiðlun af ýmsum toga. Nemendur fara yfir ýmis grundvallaratriði sem varða námsmarkmið, markhópa, handritsgerð, gagnvirkni, miðlun og framsetningu á efni; kynnast áhöldum til vinnslu á myndefni og hljóðum; spreyta sig á gagnagerð og setja saman einfalt efni þar sem miðlum er teflt saman. Vakin verður athygli á ýmsu sem ofarlega er á baugi í þróun á sviði upplýsingatækni og miðlunar hverju sinni. Litið verður á námsefnisgerð og margmiðlun í fræðilegu samhengi kenninga um nám og kennslu með sérstakri áherslu á myndræna framsetningu, notendaskil og gagnvirkni. Stuðlað verður að því að nemendur átti sig sem best á kostum og takmörkum ýmiss konar miðla í starfi grunnskóla.
Umsjónarkennari: Stefán Jökulsson